Á Tölvu- og vefþjónusta LHÍ ber ábyrgð á rekstri tölvukerfis skólans og tækni- og tölvuþjónustu við starfsmenn og nemendur.

Leiðbeiningar um hvernig á að stofna verkbeiðni má finna hér

Ýmsar leiðbeiningar fyrir nemendur og starfsmenn má finna hér hjalp.lhi.is

Aðsetur og viðverutími þjónustudeildar:

Aðalskrifstofa tölvusviðs er staðsett á jarðhæð í Þverholti 11

Starfsmaður tölvusviðs er með viðveru í öllum aðalbyggingum LHÍ
Í Þverholti á föstudögum frá kl. 9.00-12.00
Í Laugarnesi á þriðjudögum kl. 9.00 -12.00
Í Skipholti eftir samkomulagi
Í Borgartúni eftir samkomulagi

Sigurþór Albert Heimisson (Sóri)
Sími: 545 2290
Email: sori [at] lhi.is

Björgvin Þorgrímsson
Email: bjorgvin [at] lhi.is (subject: %C3%9Eetta%20telst%20ekki%20bei%C3%B0ni%20um%20a%C3%B0sto%C3%B0)

Viktor Aron Bragason
Sími: 545 2290
Email: viktor [at] lhi.is

Starfsmenn tölvusviðs eru að störfum frá kl. 9.00 - 16.00. Oft eru þeir að störfum fjarri skrifstofum sviðsins og er þá hægt að senda ósk um aðstoð í tölvupósti á verk [at] hjalp.lhi.is (subject: Bei%C3%B0ni%20um%20a%C3%B0sto%C3%B0)

Til að óska eftir þjónustu er sendur tölvupóstur á verk [at] hjalp.lhi.is (subject: Bei%C3%B0ni%20um%20a%C3%B0sto%C3%B0)  Þá er gefið upp nafn og staða innan skólans (nemandi, kennari, skrifstofa) ásamt staðsetningu (Þver- Skip- Laug) netfangi og símanúmeri og borið upp erindi. Bilanir eða önnur atriði sem stöðva kennslu njóta forgangs og og er þá hægt að hafa samband í farsíma 545 2204

Reglur um notkun tölvubúnaðar í eigu eða umsjá Listaháskólans gilda fyrir alla starfsmenn og nemendur skólans. Notendum er skylt að kynna sér reglurnar. Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvukerfi LHÍ, sé um alvarlegt eða endurtekið brot að ræða, getur það endað með brottvísun úr Listaháskóla Íslands.

Þjónusta

Þjónusta við nemendur

Nemendur fá úthlutað pósthólfi hjá lhi.is
Pósthólfið er staðsett á netþjónum Microsoft og veitir um leið aðgang að 1TB geymslusvæði í OneDrive, aðgang að Office 365 forritum (Word, Excel, PowerPoint og fl.) og leyfi til að hlaða niður Office forritunum á allt að 5 tæki.

Nemendur fá 5000 kr. prentunarkvóta á önn sem samsvarar 100 A4 síðum í lit eða 500 A4 síðum í svart/hvítri laserprentun. Ef þeir fara umfram hann þurfa þeir að greiða sérstaklega fyrir prentun.  Það er gert á aðalskrifstofu í Þverholti, í móttöku í Laugarnesi og hjá þjónustufulltrúa í Skipholti.

Tölvudeildin veitir upplýsingar og aðstoð eftir atvikum til að:

  • Tengjast netkerfi
  • Stilla aðgang að póst- og prentþjónustu skólans
  • Komast á skráaþjóna skólans

Á vinnusvæðum nemenda er þráðlaust net.Nemendur eiga að tengjast þráðlausu neti sem heitir LHI með netfangi og lykilorði. (Windows notendur með notendanafni (fram að @lhi.is} og lykilorði)
Nemendur geta fengið aðstoð við grunnþjónustu sem snýr að námi þeirra við skólann. Þau kerfi sem þjónustudeild styður eru: Mac OS X, Linux, Windows.
Ef ekki er hægt að stilla vélar inn á grunnþjónustu vegna bilunar í vélbúnaði, stýrikerfi eða öðrum hugbúnaði verður nemandi að snúa sér til síns viðgerðaraðila.

Þjónusta við kennara

Upplýsingar og aðstoð eftir atvikum til að: tengjast netkerfi skólans, stilla póstþjónustu skólans, komast á skráarþjóna skólans, setja upp prentara skólans á vélum kennara þar sem það á við og fleira.
Vélar og tæki starfsfólks og kennara í eigu skólans fá fulla þjónustu, jafnt vélbúnaðar sem hugbúnaðar. Stundakennarar geta fengið aðstoð við grunnþjónustu sem snýr að kennslu þeirra við skólann.
Starfsmenn tengist þráðlausu neti sem heitir SKRIFSTOFA með netfangi og lykilorði (Windows notendur með notendanafni (fram að @lhi.is} og lykilorði)
Ef ekki er hægt að stilla vélar inn á grunnþjónustu vegna bilunar í vélbúnaði, stýrikerfi eða öðrum hugbúnaði verður kennari að snúa sér til síns viðgerðaraðila.

Prentun

Í skólanum eru til tæki til prentunar. Ef prenta þarf mikið magn gagna er rétt að hafa samband við tölvusvið sem getur metið hagkvæmni innanhússprentunar eða mælt með aðkeyptri prentun.

Staðsetning prentara

  • Þverholt
    • Í vinnurými á 2.hæð er A4, A3 litaprentari.
    • Í vinnurými á 3.hæð er A4, A3 litaprentari.
    • Í vinnurými á 4. hæð er A4, A3 litaprentari.
       
    • Á skrifstofu á 5. hæð er A4, A3 litaprentari fyrir starfsfólk.
  • Laugarnes
    • Á fyrstu hæð við bókasafn er A4, A3 litaprentari.
    • Á fyrstu hæð við ljósmyndaver er A4, A3 litaprentari.
    • Á annarri hæð við stofu 210 er A4, A3 litaprentari.
    • Í ljósmyndaveri eru ljósmyndaprentarar í ýmsum mismunandi stærðum.
       
    • Á þriðju hæð á kennarastofu starfsmanna sviðslistadeildar er prentari fyrir starfsfólk.
  • Skipholt
    • Á 4. hæð er A4, A3 litaprentari.
       
    • Á 4. hæð er A4, A3 litaprentari fyrir starfsfólk í vinnurými kennara. 
  • Borgartún
    • Á fyrstu hæð er A4, A3 litaprentari.

 

Notendur geta sett upp prentara á eigin tölvur.
Hér eru leiðbeiningar https://www.lhi.is/prentleidbeiningar