Í sviðslistadeild er boðið upp á nám á fjórum námsleiðum: leikaranám, sviðshöfundanám, alþjóðlegur samtímadans og alþjóðlegt meistaranám í sviðslistum.
Í sviðslistadeild stefnum við að því að mennta sjálfstætt og skapandi sviðslistafólk sem hefur færni og hugrekki til þess að takast á við fjölbreytilegt starfsumhverfi sviðslista og láta til sín taka. Markmið sviðslistadeildar er að veita nemendum yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í sviðslistum. Stefnan er ekki aðeins að veita góðan tæknilegan grunn, heldur einnig að auka víðsýni nemenda og þeir kynnist í verki helstu möguleikum í sínu fagi, nýsköpun og skörun við aðrar greinar.
Sviðslistadeild heldur utan velur utan um stefnumót nemenda við áhorfendur en deildin stendur fyrir fjölda viðburða og sýningar sem endurspegla námið. Viðburðir eru í formi kynningar á afrakstri vinnustofa í skapandi og túlkandi fögum, einstaklingsverkefnum og lokaverkefnum þvert á námsleiðir en auk þess eru haldnar reglulegar málstofur og málþing um fagleg málefni.
Alþjóðasamstarf er mikilvægt í deildinni en nemendum gefst kostur á að fara í skiptinám og/eða starfsþjálfun erlendis, gestanemendur og kennarar frá erlendum menntastofnunum eru tíðir gestir í skólastarfinu og deildin er þátttakandi í erlendum samstarfsverkefnum og sviðslistahátíðum þvert á lönd og álfur.
Sviðslistadeild Listaháskólans er í góðum tengslum við grastrót íslenskra sviðslista og er einnig í samstarfi við helstu sviðslistastofnanir og hátíðir í landinu eins og Þjóðleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Útvarpsleikhúsið, Íslenska dansflokkinn, Lokal alþjóðlega leiklistarhátíð og Reykjavik Dancefestival. Inntökupróf er inn á allar námsleiðir deildarinnar. Þriðja hvert ár eru ekki teknir inn nýir nemendur í sviðslistadeild.
Nám til bakkalárgráðu við sviðslistadeild er þriggja ára nám, 180 einingar en nám á meistarastigi er til 90 eininga.
Manifesto sviðslistadeildar
Við nálgumst listina af virðingu og auðmýkt
Við höfum hugrekki til að takast á við samtímann
Við notum söguna sem stökkpall inn í framtíðina
Við erum forvitin, víðsýn og framsækin
Við tökum áhættu
Við fögnum mennskunni