Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Eygló Höskuldsdóttir Viborg

Alter Eygló – frumsamin karókítónlist, fjárfesting til framtíðar


Klassíska tónskáldið Eygló Höskuldsdóttir Viborg stendur á krossgötum. Hinn klassíski tónlistarheimur er harður húsbóndi og lítinn sem engan pening er að hafa upp úr krafsinu. Hún hefur því samið átta popplög til að ná til fleiri eyrna og í von um að þau verði vinsæl á karókíbörum landsins.

Í sýningunni mun hliðarsjálf hennar, Alter Eygló, flytja lögin opinberlega sem ásamt því að velta vöngum yfir hvernig hún eigi að ná endum saman af tónlistinni einni.

Áhorfendur fara í ferðalag þar sem þeir munu líta í eigin barm varðandi neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur á bakvið hana.

Aðstoðarmaður: Hanna Ágústa Olgeirsdóttir.

Þakkir: Hallveig Kristín Eiríksdóttir, Jóhanna Viborg, Brogan Davison, Angela Rawlings & Hrefna Lind Lárusdóttir.

Eygló Höskuldsdóttir Viborg er með meistaragráðu í tónsmíðum frá New York University. Á ferlinum hefur hún skrifað fjölda verka meðal annars fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, JACK Quartet, Cauda collective og Hljómeyki. Hún er í sviðslistahópnum Slembilukka og er meðlimur Tóma Rýmisins. Í meistaranámi sínu í sviðslistum hefur hún verið að vinna með hliðarsjálf sitt Alter Eygló sem skrifar og flytur frumsamin karókílög.

Practical information

Hvenær:
Þriðjudagur 28. janúar – kl. 17:00 – 18:30
Fimmtudagur 30. janúar – kl. 17:00 – 18:30
Laugardagur 1. febrúar – kl. 20:00 – 21:30 (með Q&A)

Hvar:
Ölver – Álfheimar 74, 104 Reykjavík

Gott að vita:
Gestir geta átt von á því að þurfa að taka þátt í sýningunni.

Facebook viðburður HÉR.