Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Hjásólir, ástand og bananabrauð 

Áfanganum Vinnustofa í borg lýkur á föstudag 24. janúar, með sýningunni Hjásólir, ástand og bananabrauð sem opnar í húsinu Líkn, Árbæjarsafni klukkan 15.00
Sýningin verður opin til 3. febrúar á opnunartíma safnsins frá kl 13.00 – 17.00
Nemendur dvöldu í húsakynnum Lækjargötu, Árbæjarsafni  í tíu daga og fengu leiðsögn um safnið.  Þau lásu hús, tóku á móti gestum, hlýddu á frásagnir og skoðuðu gripi.  Hvað er táknsæi og hvernig hreyfist merking til? Býr hjartað enn í helli sínum?  Birtist Askur Yggdrasill okkur í Vetrarbrautinni? Hver dregur Karlsvagninn og hver dregur mörkin?
Við þökkum starfsfólki Árbæjarsafns fyrir skjólið og gestunum: Hörpu Arnardóttur, Ófeigi Sigurðssyni, Kristínu Svövu Tómasdóttur og Gísla Sigurðssyni fyrir að blása í andann og sækja okkur heim.
Sýnendur:
Anna Ólöf Jansdóttir
Bjarki Höjgaard
Bjarki Þór Sævarsson
Celina Aleksandra Borzymowska
Katrín Edda Lan Þórólfsdóttir
Lára Kristín Margrétardóttir
Lauf Larsen Kristmundsson
Sóley Lúsía Jónsdóttir
Umsjón:
Margrét H Blöndal

Aðrir viðburðir

: ?>