Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

MISBRIGÐI X

Verkefnið Misbrigði er nú unnið í tíunda sinn af nemendum í fatahönnun á 2. ári við Listaháskóla Íslands í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kross Íslands. Markmið þess er að rannsakaða leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum með þekkingu og aðferðafræði hönnunar og vekja um leið athygli á textílsóun.  

Það er óhætt að segja að framleiddur sé fatnaður langt umfram það sem við þurfum og að mengun af þeim sökum sé komin úr böndunum. Óhófleg neyslumenning og stuttur líftími textíls gerir tísku- og textíliðnaðinn mjög óumhverfisvænan. Þessu þurfum við að huga að, draga úr neyslu og nýta betur það sem við höfum. Þar getur skapandi endurnýting spilað veigamikið hlutverk í framtíðinni en það þarf ekki að koma niður á sköpunargleðinni. Með aðferðafræði hönnunar og þekkingu má glæða gömul klæði og efni nýju lífi, sem við gerum hér.  

 

Nemendurnir sem sýna í ár eru:   

Alma Hildur Ágústsdóttir 

Björk Bregendahl 

Diane Francoiseau de Biran 

Hafberg Sól 

Hulda Kristín Hauksdóttir 

Kristrún Rut Hassing Antonsdóttir 

Ólafía Elísabet Einarsd. Eyfells 

Rieke Reiniak 

Rósa Sigmarsdóttir 

Stella Michiko 

Sverrir Ingi Ingibergsson 

 

Tískusýningin verður haldin þann 2. nóvember í svarta kassanum, leikhúsrými Listaháskóla Íslands Laugarnesvegi 91, gengið inn ofan við húsið. 

Tískusýningin verður sýnd tvisvar, kl. 17 og kl. 18. Hægt er að nálgast ókeypis miða á tix.is 

Aðrir viðburðir

: ?>