Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuPraxis, sviðslistaþing Listaháskóla Íslands, verður haldið í annað sinn laugardaginn 29. mars 2025. Þingið er vettvangur fyrir listrænar tilraunir, þekkingarsköpun og samtal milli fagvettvangsins og háskólasamfélagsins. Þannig er þingið staður fyrir sviðslistasenuna til að koma saman og deila aðferðum, rannsóknum, og hugsa saman til framtíðar.
Þema Praxis 2025 er Leikstjórar um leikstjórn – Hvað / Hvernig / Af hverju. Aðalfyrirlesari þingsins er Saana Lavaste, prófessor í leikstjórn við Uniarts Helsinki en yfirskrift erindis hennar er Að skapa þriggja stiga kringumstæður: Sviðið, sýningin og æfingaferlið. Þingið hefst á opnun og kynningu á Rauða Torginu á fyrstu hæð LHÍ og hefst dagskráin í kjölfarið. Hver viðburður tekur 45 mínútur og er gert ráð fyrir stuttum hléum á milli. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Praxis er haldið í húsnæði Listaháskóla Íslands að Laugarnesvegi 91, 105 Reykjavík. Ókeypis aðgangur og engin skráning. Öll hjartanlega velkomin.
Athugið – Frekari upplýsingar og dagskrá að vænta síðar.
//
Praxis, Iceland University of the Arts’ Performing Arts Symposium, will be held for the second time Friday March 29th, 2025. The symposium is a platform for artistic experiments, knowledge creation and dialogue between the performing arts scene and the academia. Thus, the symposium becomes a place for the Icelandic performing arts scene to come together, share methods and/or research, and look towards the future.
The theme of Praxis 2025 is Directors on Directing – What / How / Why. The keynote speaker of the symposium is Saana Lavaste, Professor of Directing at Uniarts Helsinki, whose talk is titled Creating the three-level situation: The scene, the performance and the production process. The program begins with an opening on the Red Square on the first floor, after which the program begins. Each lecture is approximately 45 minutes, followed by a short break where coffee and light snacks will be served.
Praxis will take place in Iceland University of the Arts, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík. Free admission and no registration. Everyone is welcome.
Note – More information & schedule to come.
WANT TO PARTICIPATE?
– MORE INFORMATION ABOUT THE OPEN CALL BELOW
– OPEN UNTIL FEBRUARY 7TH2025