Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuFiðluleikarinn Ari Þór Vilhjálmsson frumflytur nýjan fiðlukonsert eftir tónskáldið Þórð Magnússon með Sinfóníuhljómsveit Íslands þann 30. janúar. Í vinnustofunni mun Þórður fjalla um verkið og Ari flytja konsertinn fyrir gesti og gangandi ásamt Liam Kaplan, píanóleikara.
Þórður Magnússon
Þórður Magnússon er tónskáld, útsetjari og nótnasetjari. Hann hefur átt velgengni að fagna sem tónskáld og hefur samið allt frá einleiks- til hljómsveitarverka, kór- og kvikmyndatónlist. Verk hans hafa verið flutt víða um heim og hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga. Sem útsetjari hefur hann unnið mikið fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og SinfoniaNord, m.a. útsett tónlist Laufeyjar, Ásgeirs Trausta, Bubba Morthens, Unu Torfa o.fl.
Ari Þór Vilhjálmsson
Ari Þór Vilhjálmsson er búsettur í Tel Aviv þar sem hann starfar sem leiðari 2. fiðlu Fílharmóníusveitarinnar í Ísrael. Hann fæddist í Reykjavík árið 1981 og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2001 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Hann stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum þar sem helstu kennarar hans voru Almita og Roland Vamos, Rachel Barton Pine og Sigurbjörn Bernharðsson.
Ari starfaði við Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) á árunum 2006 – 2015 en flutti þá til Finnlands og tók við leiðarastöðu í Fílharmóníusveitinni í Helsinki. Hann hefur einnig verið gestakonsertmeistari við sinfóníuhljómsveitir í Stokkhólmi og í Toulouse. Ari hefur komið fram sem einleikari með hljómsveitum í Bandaríkjunum, Finnlandi og á Íslandi. Hann hefur dálæti á kammertónlist og spilar hana reglulega, m.a. með tónlistarhópum sem hann hefur átt þátt í að stofna; Helsinki Chamber Soloists og White City Ensemble í Tel Aviv.