Sláðu inn leitarorð
Snjallræði - samfélagshraðall
14.06.2018 - 09:00 til 14.06.2018 - 11:00
Þjóðminjasafnið
Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg, FESTA, atvinnuvega-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Listaháskóli Íslands, Nýsköpunarmiðstöð og Höfði friðarsetur skuldbinda sig til samstarfs um undirbúning að stofnun viðskiptahraðals á sviði samfélagslegrar nýsköpunar samkvæmt samningi þessum. Samningurinn hefur enga fjárhagslega skuldbindingu í för með sér fyrir samstarfsaðila en í samstarfinu felst ráðgjöf, aðgangur að mannauði og aðstoð við þróun og kynningu. Höfði friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð sjá um framkvæmd verkefnisins og er umsýsla og skipulag í höndum verkefnisstjóra Höfða friðarseturs.