Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu tuga nemenda á BA stigi í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands í Hafnarhúsinu. Verkin endurspegla nám, rannsóknir og listsköpun nemendanna síðustu þrjú ár. Á sýningunni getur að líta myndlist, grafíska hönnun, arkitektúr, fatahönnun og vöruhönnun. 

Sýningin ber nafnið Teikn / Gestures og sýningarstjóri er Thomas Pausz, vöruhönnuður. 

Frá sýningarstjóra: 

"Fyrst birtist teikn (e. gesture), hreyfing sem við kjósum að framkvæma. 

Við búum til tákn, við hreyfum til línu, við sláum tón og um stundarsakir hefur öllu sem við vitum verið slegið á frest. Með tímanum ljáum við þessu ef til vill ákveðnara sköpulag, við æfum það, römmum það inn, gefum því jafnvel titil -  en öll slík fágun hvílir á brothættu andartaki uppgötvunar.

Nú á tímum eftir-sannleikans verður sífellt erfiðara að smíða einfaldar frásagnir eða leggja traust sitt á flokkunarkerfi. Hvernig er okkur þá unnt að snerta við áhorfendum, með hvaða hætti höfum við áhrif á raunveruleikann og hvernig bjóðum við upp á valkosti við ríkjandi ástand með því að setja upp sýningu á verkum?

Listaháskóli nærist á teiknum, skissum, mistökum, ófullkomnum verkum og ferlum, ekki síður en á sérfræðiþekkingu og nákvæmri tæknikunnáttu. Á sýningunni framundan, þar sem finna má verk á sviði hönnunar og myndlistar, höfum við gefið nemendum okkar tækifæri á að undirstrika spennuna á milli þessara tveggja vídda í sköpun þeirra: óvissunnar sem einkennir ferlið, og skerpunnar sem fólgin er í þeirri athöfn að ljá einhverju sköpulag. Innsæið býður að gestir sýningarinnar gætu uppgötvað merkingarbær teikn á öllum stigum vinnuferlisins, og notið þess að rekja sifjar þeirra verka sem eru til sýnis."

 

 

Mynd: Iona Sjöfn Huntingdon Williams