Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuTónlistadagur Halldórs Hansen.
Mánudaginn 28. apríl fer fram verðlaunaafhending og úthlutun úr sjóði Halldórs Hansen. Viðburðurinn fer fram í í Skriðu, Stakkahlíð 1 og hefst kl.15:00.
Halldór Hansen barnalæknir lét eftir sig mikið tónlistarsafn með um 10.000 hljómplötum, sem hann ánafnaði Listaháskólanum í erfðaskrá ásamt öðrum eigum sínum sem skyldu renna í sérstakan sjóð í hans nafni. Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn Listaháskóla Íslands og veita árlega styrk til framúrskarandi tónlistarnema.
Stjórn sjóðsins skipa þau Kristín Eysteinsdóttir, formaður, Þóra Einarsdóttir, ritari og Pétur Jónasson, meðstjórnandi.