Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

“unpacking”

Undanfarin átta ár hafa nemendur á fyrsta ári við meistaranám myndlistardeildar dvalið eina viku á Hjalteyri sem hluti af vinnustofu haustannar. Verkefnið er samvinnuverkefni Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Listaháskóla Íslands. Nemendur hafa sett upp sýningu í Verksmiðjunni  þar sem saga verksmiðjunnar og sérstaða staðarinns er efniviður og viðfangsefni verka þeirra. Að þessu sinni fer Brigid McLeer myndlistarmaður með nemendum norður og leiðir námskeiðið ásamt Gústav Geir Bollasyni, myndlistarmanni og stofnanda Verksmiðjunnar.

Meistaranemarnir dvelja á Hjalteyri frá 15. – 22. september og lýkur dvöl þeirra með sýningunni “unpacking” sem verður opnuð í Verksmiðjunni á Hjalteyri laugardaginn 21. september og kl.16:00 – 18:00  

Hvað við komum með til Hjalteyrar:
Kveikir, mót, patience, possibilism, rope, salt, ghosts, breath, hot water bottle, iron, threshold, tunnumerki, spjaldskrá, bucket, fire, warm clothes, tea.

Nemendur:
Berglind María Tómasdóttir
Irene Hrafnan Bermudez

Leonie Lass
Lucrezia Costa

Mirjam Maeekalle

Sepideh Safiyari
Sara Björg Bjarnadóttir
Sarah Claire Moore

Svend Holmboe Pedersen
 

Öll hjartanlega velkomin. 


For the past eight years, the 1st year MA Fine Art students, have spent one week in Hjalteyri as a part of the fall workshop. The project is a collaborative project between Verksmiðjan in Hjalteyri and the Iceland University of the Arts. The students have set up an exhibition in Verksmiðjan, where the history of Verksmiðjan and the uniqueness of the place are the material and subject of their works. This time, visual artist Brigid McLeer accompanies the students and leads the workshop together with Gústav Geir Bollasyni, visual artist and founder of the Verksmiðjan.

The students will stay in Hjalteyri from September 15th – 22nd and end their stay with the exhibition „unpacking“, which will open in Verksmiðjan – Saturday, September 21st from 16:00 – 18:00.

What we bring to Hjalteyri:
Kveikir, mót, patience, possibilism, rope, salt, ghosts, breath, hot water bottle, iron, threshold, tunnumerki, spjaldskrá, bucket, fire, warm clothes, tea.
 

Students:
Berglind María Tómasdóttir
Irene Hrafnan Bermudez 
Leonie Weber
Lucrezia Costa
Mirjam Maekalle
Sepideh Safiyari
Sara Björg Bjarnadóttir
Sarah Claire Moore
Svend Holmboe Pedersen  

All welcome.