Föstudaginn 11. maí heldur CAPUT-hópurinn vinnustofu með nemum á 1. ári í meistaranámi í tónsmíðum. Vinnustofan verður haldin í Breiðholtskirkju og dagskráin er eftirfarandi:

  • 14:00 Alexssandro Cernuzzi
  • 14:50 Arngerður Árnadóttir
  • 16:10 Cristian Öhberg
  • 17:00 Svetlana Veschagina

    Stjórnandi er Guðni Franzson. Allir velkomnir og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.