Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra stendur einnig að útgáfu Kærleikskúlunnar en að þessu sinni hannaði myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson útlit hennar. Kúlan ber heitið Mandarína og skartar fagurgulum röndum. Davíð Örn úrskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2002 og hefur síðan þá vakið verðskuldaða athygli fyrir listsköpun sína.

Ágóðinn af sölu jólaskrautsins rennur til Æfingarstöðvar félagsins og til handa sumardvalar fyrir fötluð börn í Reykjadal.

Hér má finna ítarlegri upplýsingar um listamennina og hönnunina og versla skrautið: