Einkasýning Alfreðs Óskarssonar, Leit handan flatarins, opnar fimmtudaginn 24. nóvember kl.17:00 - 20:00 í Kubbnum, Laugarnesvegi 91, 2. hæð. Sýningin er í röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist.

Alfreð Óskarsson sýnir myndbandsverk og hljóðverk sem fjallar um leitina handan flatarins.

Á tímabilinu 13. október - 24. nóvember stendur yfir röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist, alls 18 sýningar

Facebookviðburður sýningarinnar

Á hverjum fimmtudegi frá 13. október - 24. nóvember opna í senn þrjár einkasýningar á mismunandi sýningarstöðum í Listaháskólanum Laugarnesi; í Naflanum sem er inn í miðju skólans, í Kubbnum á annari hæð og síðast en ekki síst í Skúrnum sem sendur fyrir utan húsið austanmegin. Opnanir eru frá kl. 17 - 20 á fimmtudögum. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur. Kennarar ásamt Heklu eru Unnar Örn og Sindri Leifsson.

Allar einkasýningar 3. árs nema í myndlist.