Námsleiðin Alþjóðlegur samtímadans BA hefur það að markmiði að mennta danslistamenn og konur sem hafa sterka listræna sýn og getu til að viðhalda starfsferli í hinum alþjóðlega heimi samtímadansins eða til áframhaldandi náms. Hið nána samstarf við samtímadanssenuna í Reykjavík skapar fullkominn vettvang fyrir dýnamískt og kraftmikið lærdómsferli þar sem nemandinn fær bæði innblástur og er ögrað á tæknilegan, samfélagslegan, sem og listrænan hátt. Nemendur fá tækifæri til að rannsaka og þróa persónulega nálgun á aðferðir kóreógrafíu, fræða, tækni, sviðsetningu og framleiðslu á samtímadansverkum.
Námsleiðin skapar virkt samtal á milli samtímadanslistarinnar við aðrar listgreinar og vettvang fyrir könnun og rannsóknir á mismunandi aðferðum og nálgunum í gegnum samsköpun og samvinnu. Sviðslistadeild á í mjög góðri samvinnu við innlendar og erlendar listastofnanir og hátíðir á sviði samtímasviðslista t.a.m. Reykjavík Dance Festival, LÓKAL-alþjóðleg leiklistarhátíð, Íslenska dansflokkinn sem og önnur leikhús og söfn í borginni.
Innan námsleiðarinnar eru þrír meginþræðir aðferða sem tvinnast saman: Tækni, fræði og skapandi ferli, auk þess sem áhersla er á að skapa sjálfbæra danslistamenn. Mikil áhersla er á að hlúa að og þróa gagnrýna hugsun nemendanna. Námsleiðin býður upp á krefjandi þjálfun í mismunandi aðferðum samtímadansaðferða og spuna, stutt af ballet fyrir samtímadansara og sómatískum aðferðum. Skapandi ferli hefur það að meginmarkmiði að þróa persónulega sýn og nálgun nemendanna, byggt á gagnrýnni nálgun á verklega vinnu og fræði.
Markmiðið námsins í heild er að kanna ný svið til listrænnar þróunar, víkka út hreyfitungumál nemendanna, styrkja gagnrýna nálgun og virkja samfélagslega og pólitíska meðvitund nemandans í tengslum við dans og kóreógrafíu. Náminu lýkur með tveimur lokaverkefnum og rannsóknarritgerð.
Námið er alþjóðlegt og er kennt á ensku.
Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands á Vimeo.